23mars

Gleđilega páska!

Óska öllum gleðilegra páska, vona að þið étið öll yfir ykkur af súkkulaði og góðum mat Hlæjandi
Skárri er einn fugl í hendi en tveir í búri.
23. mars 2008 klukkan 14:58
Beggz
Engin athugasemd
22mars

ÚFF, long time no see.

Jæja, nýtt blogg er nú orðið long overdue Hissa

       Það er alveg svakalega mikið búið að gera síðan ég bloggaði seinast enda orðnir 6 mánuðir síðan ég bloggaði seinast. Ætla samt rétt að hlaupa yfir það sem stendur uppúr.

       Í fyrsta lagi er kellan orðin tvítug sem er náttla stór kafli í lífinu en það er orðið frekar langt síðan samt HissaHlæjandi
       Ég hætti á leikskólanum rétt eftir seinustu bloggfærslu og fékk starf sem aðstoðarverslunarstjóri hjá þekktri matvælakeðju. Mjög gaman þrátt fyrir að ég vinni mun meira og einnig meira álag á mér.      
       Ég er að vinna með æðislegu fólki og viðskiptavinirnir eru oftast mjög nice, auðvitað eru samt nokkur rotin epli en það skemmir lítið skemmtunina í vinnunni því ef einungis einn kúnni brosir breitt til manns þá er deginum reddað og ég fæ mun meira en 1 bros á dag enda yfirmaðurinn brosandi 24/7 Glottandi

       Ég og Kittý héldum stórt Halloween partý í byrjun nóvember og var mjög gaman þrátt fyrir að endirinn hafi verið svolítið óvæntur enda mættu nokkrir lögreglubílar og sjúkrabíll á staðinn og nágrannarnir voru ekki par hrifnir en allt í allt var þetta mjög skemmtilegt og frekar spennandi í endann.

       Ég hef á undanförnum mánuðum hugsað meira um sjálfa mig enda var það nýársheitið mitt. Ég er farin að hugsa meira um útlitið, búin að byggja mig upp andlega og mest af öllu hef ég aukið sjálfsöryggið mitt allsvakalega mikið. Það er stórundarlegt hvað aukið sjálföryggi getur gert manni, ég er nánast alltaf í góðu skapi, það fer lítið í taugarnar á mér, ég er ekki jafn feimin og ég var og er allt í allt bara orðin mjög hamingjusöm en ég hélt fyrir um það bil ári að það væri ekki mögulegt. Aukið sjálfsöryggi mitt hefur einnig haft áhrif á fleiri en mig því ég er greinilega farin að líta mjög vel út í augum annarra. Ég er farin að fá mjög mikið af augngotum, viðreynslum og fleiru. Ég er komin með nokkra fastakúnna í vinnunni sem vilja ekki leyfa neinum öðrum en mér að afgreiða þá og eru í því að reyna við mig á meðan ég er að undirbúa matinn þeirra Glottandi Sumir þeirra eru mjög sætir og skemmtilegir sem er auðvitað kostur en auðvitað er það alltaf þannig að þegar fólk er í hrönnum á eftir manni þá getur maður ekki hugsað sér neinn þeirra því maður vill alltaf það sem maður getur ekki fengið. Þetta gildir um mig líka, hugur minn er allur hjá náunga sem ég veit að ég get ekki fengið en þó get ég ekki hætt að hugsa um hann, væmið I know Ullandi

       Sambúðin gengur framar öllum vonum. Við Kittý erum búnar að gera íbúðina enn meira kózý en nokkru sinni áður. Erum alltaf að breyta og bæta og alltaf finnst okkur íbúðin líta betur út en hún gerði fyrir. Auðvitað eigum við lazy days þá felast dagarnir í svefni, liggja í leti fyrir framan sjónvarpið og fleira álíka og þá nennum við yfirleitt ekki að taka til og því lítur íbúðin stundum út eins og svínastía en við tökum okkur alltaf á á endanum og þrífum allt hátt og lágt þannig að yfirleitt er íbúðin í nokkuð ágætu standi þannig að vinum er ávallt velkomið að kíkja í heimsókn og ég lofa að þið munuð ekki drukkna í drasli Glottandi

       Við höfum verið mjög rólegar undanfarna mánuði miðað við það hvað við vorum vanar að djamma mikið á síðasta ári. Við tökum þó alltaf eitt gott djamm öðru hverju og það er yfirleitt mikið gaman og alltaf nægar sögur að segja eftir þau djömm Glottandi Þau enda yfirleitt með eftirpartýi heima hjá okkur með slatta af fjörugu liði og höfum við fengið mjög mikil hrós fyrir hvað tónlistin sé alltaf skemmtileg hjá okkur sem er mjög gott því við vonum að það þýði að fólk sé að skemmta sér Glottandi

       Ég man ekki eftir fleiru sem ég get skrifað þannig að ég kveð í bili og vona að ég fari að herða mig á í þessu blogg dæmi, ég veit að ég hef sagt þetta marg oft en þar sem allt er að falla í réttar skorður í mínu lífi þá ætla ég að vona að ég geti loks farið að standa við þetta.
       Allavega, bestu kveðjur í bili og ég lofa að næsta færsla verður ekki jafn löng nema það líði aftur 6 mánuðir.

 

Love Beggz KossGlottandi

22. mars 2008 klukkan 02:22
Beggz
2 athugasemdir
15september

Jćja, kannski mađur bloggi smá svona ţar sem mađur er ađ hefja nýtt líf!

Svona standa málin:
Ég er flutt frá Hnakkzville og flutti beint í Ghettóið Glottandi
Ég og Kittý erum orðnar geðveikt duglegar að standa á eigin fótum.

Íbúðin er orðin geðveikt cozy og rokkuð, ætlum að byrja smátt og gera hana að rokkuðustu íbúð Íslands en á endanum á hún náttúrulega að verða rokkaðasta íbúð í heimi GlottandiSvalur
Mér skilst að þetta sé THE party place í ghettóinu sem er auðvitað bara fínt, fólk er allavega duglegt að mæta á suddafyllerí! Hlæjandi

Það sprakk rör í veggnum hjá okkur og það fór allt á flot og auðvitað hringdi ég strax í Guttorm pípara (Hauk frænda) sem kom strax og gerði gat í vegginn hjá okkur og lokaði fyrir vatnið. Jæja, svo kom kall frá einhverju tryggingafélagi með einhvern hitablásara til að þurrka gólfið. Á mánudaginn komu svo 2 píparar (annar var flottur sko Glottandi) þeir stækkuðu gatið í veggnum og gerðu við og sögðu að svo að það kæmi múrari fljótlega en hann hefur ekki enn látið sjá sig og það eru liðnir 5 dagar...það hefur heldur enginn komið til að meta skemmdirnar á gólfinu hjá okkur! En ég veit ekki hvað ég hefði gert ef Haukur frændi hefði ekki komið og bjargað okkur, TAKK HAUKUR!

Jæja, ég er búin að vera að vinna á leikskóla síðan 8. júní og nú er ég bara komin með nóg...í fyrsta lagi eru launin alveg skítléleg og í öðru lagi þá er ég komin með svo mikið af bitförum eftir börnin að ef ég myndi vinna þarna lengur þá myndu þau éta mig upp til agna! Ég allavega hætti þann 28. september á blessuðum leikskólanum. Veit ekki alveg hvað tekur við eftir það Óákveðinn Er samt mikið að pæla í að fá mér næturvinnu, mikið betri laun!

Erum LOKSINS komnar með netið!
Já og btw. ég fucking hata banka!!!!
Annars er frekar lítið að frétta...það er að segja fyrir utan það sem má ekki fréttast strax Saklaus.

Já, og btw. ...Þóra er alveg svakaleg helgarrotta á þessum bæ! Gleymdi að minnast á það þegar ég skrifaði bloggið upprunalega (gott að það er hægt að breyta færslum :P ) ;) Sko þegar það er partý hérna (sem er nánast hverja einustu helgi) þá er Þóra auðvitað mætt með góða skapið og bjórana sína og svo neitar hún bara að fara...hehe...nei djók! Viljum alls ekki losna við hana :D
Með kærri kveðju úr Ghettóinu
Beggz

15. september 2007 klukkan 22:07
Beggz
9 athugasemdir
26október

Já!

Ég mun ekki nota þessa síðu mikið undir bloggfærslur heldur mun ég setja hér inn ljóð eftir mig og jafnvel líka nokkra lagatexta. Þið verðið bara að nota gestabókina ef þið viljið kommenta!

Kv. Beggz   Glottandi

26. október 2006 klukkan 01:54
Beggz
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...